Ofboðsleg norðurljós í kvöld?

Einn af stærstu sólblettum sl. mánaða snýr nú beint að Jörðinni.

Þetta kemur fram á síðunni nordurljos.is undir fyrirsögninni: „Ofboðsleg Norðurljósasýning í kortunum!“

Þessi sólblettur hefur verið að senda af stað vænar gusur af efniseindum. Hann er um 20 sinnum minni en sólblettur sem þann 13. mars 1989 olli víðtæku rafmagnsleysi í norður Ameríku og Kanada þegar segulmögnun olli hækkaðri spennu í háspennulínum og í kjölfarið 12 klst útslætti og rafmagnsleysi hjá milljónum manna, að því er kemur fram á norfurljos.is

„Þá sáust norðurljósin allt suður til Flórída og Kúbu. Þessi sólblettur verður hugsanlega örlítil prófraun á háspennulínurnar okkar en atburðurinn núna er þó ekki meðal þeirra stærstu sem við getum séð koma frá Sólinni. Bein yfirvofandi hætta á rafmagnsleysi að þessu sinni er því hverfandi en alltaf er þó gott að vita hvar vasaljósið er geymt.“