Ofbeldi og frekja á alþingi íslendinga

„Það er gríðarlegt ofbeldi sem beitt er í þinginu - frekjan er rosaleg - við höfum verið kölluð pólitískir hryggleysingjar og lindýr - ef þau fá ekki sínu fram - þá er þingið tekið í gíslingu - Svandís fer fyrir aðgerðum,“ skrifar Vigdís Hauksdóttir á Facebook og tilefnið eru orð Svandísar Svavarsdóttur um Sigmund Davíð Gunnlaugsson og hveru mikill léttir það var, að hennar mati, þegar hann fór í frí frá þingstörfum.

„Þingsköpin eru ónýt og allar breytingar á þeim undanfarin ár hafa að því að virðist vera samin af lögfræðilegum amatörum. Ég er meðal annars að hætta á þingi vegna þessa ofbeldis - forseti þingsins og forsætisnefnd þora ekki að beita sér til að laga ástandið.“