Ofbeldi ísraela njóti ekki friðhelgi

Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, vildi í dag vita undir liðnum Störf þingsins á Alþingi hver afstaða Árna Páls Árnasonar formanns Samfylkingarinnar væri til sniðgöngutillögu borgarráðs. Höskuldur vildi vita hvort Árni Páll hefði stutt tillöguna þegar hún var lögð fram. Hann vitnaði til frétta um að hugsanlega myndi 17 milljarða króna fjárfesting tapast. Engir smá hagsmunir væru í húfi. Mikilvægt væri að fá afstöðu formanns Samfylkingar fram. Borgarstjóri, Dagur B. Eggertsson, væri sjálfur á harðahlaupum í málinu.

Árni Páll sagði rökrétt og skynsamlegt að draga fyrri samþykkt til baka af því að það þyrfti að vinna hana betur. \"Þannig vinna alvöru stjórnendur, þeir moka sig ekki dýpra í holu heldur leita leiða til að bæta fyrir vandræðin.\"

Árni Páll áréttaði að sú afstaða að fordæma ofbeldi Ísraelsmanna væri ekki nýjung meðal norrænna jafnaðarmanna. Hann benti Höskuldi á að hann hefði sjálfur stutt viðskiptabann við Rússa og sagði aðHöskuldur þyrfti sjálfur að svara hvort hans eigin afstaða í sniðgöngumálinu byggði á \"pólitískum hráskinnaleik eða prinsipi\".

Formaður Samfylkingarinnar sagðist ekki geta samþykkt að ofbeldisaðgerðir Ísraelsmanna á hernumdum svæðum skyldu einar á heimsvísu njóta friðhelgi.