Ófærð á meðal bestu þáttaraða ársins að mati bbc

Íslenska þáttaröðin Ófærð er á meðal 12 bestu þáttaraða ársins að mati BBC. Hún er þar í hópi þekktra þáttaraða á við Chernobyl, Stranger Things, Mindhunter, When They See Us, Succession og Fleabag.

Ófærð hefur notið mikilla vinsælda hér á landi og einnig hefur hróður íslensku spennuþáttaraðarinnar borist út fyrir landsteinana. Hafa Bretar til að mynda tekið sérstöku ástfóstri við þáttaröðinni, þar sem áhorf á báðar seríur var einkar gott þegar þær voru sýndar á BBC.

Í umsögn BBC um seríu 2 af Ófærð segir: „Í annarri seríu var að finna fleiri óhugnanlega glæpi en einnig var kafað dýpra í samtímavandamál: Ógn öfgahægriafla; ótta við innflytjendur og mótmæli vegna umhverfisslysa.[…] Ófærð er snjöll og þunglyndisleg sería og ein af fáum norrænum glæpaþáttaröðum, eða síðan Brúin var í sýningum, sem lætur áhorfendur vilja meira.“