Ástandið í Jemen er skelfilegt og fer versnandi en óttast er að um helmingur þjóðarinnar sé á mörkum skelfilegrar hungursneyðar. Um ellefu milljón börn þurfa lífsnauðsynlega hjálp og um 400.000 börn eru í bráðri lífshættu vegna vannæringar. Sameinuðu þjóðirnar segja að ástandið í landinu stefni í að verða alvarlegra en áður hafi sést. Haft hefur verið eftir hjálparstarfsfólki í Jemen að börnin séu svo veikburða af völdum vannæringar að þau geti ekki grátið. UNICEF víða um heim hefur hafið söfnun til að bjarga börnum í Jemen, líka á Íslandi og Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi kom í fréttaþáttinn 21 og ræddi við Margréti Marteinsdóttur.
Of veik til að gráta
Fleiri fréttir
Nýjast