Of upptekinn fyrir forseta

Fjarvera tveggja fyrrverandi forsætisráðherra, við innsetningu Guðna Th. Jóhannessonar í embætti, hefur vakið athygli. Hvorki Davíð Oddsson né Sigmundur Davíð Gunnlaugsson voru við athöfnina.

Engin skýring hefur fengist á fjarveru Davíðs, en haft er eftir Sigmundi Davíð að hann hafi verið að ferðast og ekki komist á athöfnina þess vegna. Geir H. Haarde var líklega ekki heldur við athöfnina, en sem kunnugt er er hann sendiherra Íslands í Bandaríkjunum, með aðsetur í Washington.

Þrátt fyrir að Sigmundur Davíð hafi ekki séð sér fært að vera viðstaddur, má segja að varaformaður flokksins hans, Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra, hafi haldið uppi merkjum síns flokks.