Of snemmt að bóka sigur guðna

Baldur Héðinsson, sem er doktor í stærðfræði, vinnur kosningaspár og hann segir of snemmt að bóka sigur Guðna Th. Jóhannessonar í forsetakosningunum.

Baldur segir eigi að síður að fátt bendi til annars en að Guðni sigri og verði næsti forseti Íslands. Þrátt fyrir að fylgi Guðna lækki um sem nemur hálfu prósentustigi á dag hafi hans helsti keppinautur, Davíð Oddsson, ekki bætt við sig fylgi að undanförnu.

Svo er að sjá að það fylgi sem Guðni verður af, færist mest yfir til Höllu Tómasdóttur.

Kosningaspár Baldurs eru birtar á Kjarnanum og kosningspa.is.

Viðtal við Baldur er á dagskrá Hringbrautar í kvöld.