Það er of snemmt að afskrifa ebóluna sem geisað hefur í Vestur-Afríku síðastliðið eitt og hálft ár. Ekki þarf mikið til að hún blossi upp aftur, að því er sérfræðingarc sögðu í fréttaskýringarþættinum Heimsljósi á Hringbraut fyrr í vikunni.
Þetta er samdómaálit hjálparstarfsmannanna Mögnu Bjarkar Ólafsdóttur, Gisla Rafns Ólafssonar og Sigurðar Guðmundssonar læknis, sem voru gestir Sólveigar Ólafsdóttur í þættinum. Gísli Rafn benti á að nýtt tilfelli hefði komið upp í Síerra Leóne þegar aðstandendur grófu upp lík sem grafið hafði verið með sjúkdómsvarnir í huga, og því margt að varast.
Sigurður segir þó mikið hafa áunnist, og að alþjóðasamfélagið geti dregið mikinn lærdóm af viðbrögðum og sér í lagi viðbragsleysi Vesturlanda gagnvart ebólunni. Ekki hafi verið eytt miklu í rannsóknir á mótefnum og bóluefnum þar til ljóst var að hún kynni að berast til Evrópu og Bandaríkjanna. Eins hafi gífurlega margar siðferðilegar spurningar vaknað í kjölfar faraldursins þar sem einungis erlendum hjálparstarfsmönnum hafi boðist meðferð á bestu sjúkrahúsum Vesturvelda, og fyrstu skammtar mótefnis einungis verið fyrir fólk utan Afríku.
Þáttinn má nálgast í heild sinni hér á hringbraut.is og einnig klippur úr honum.