Egill Helgason, sjónvarpsmaður og Stefanía Óskarsdóttir, stjórnmálafræðingur spá í ríkisstjórnarmyndun á Hringbraut í kvöld og telja að þær viðræður sem eru á milli Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar séu komnar of langt til þess að Bjarni geti snúið sér að VG og Framsókn sem hafa undanfarna daga sóst eftir samtali við hann. Egill bendir á að Bjarni hafi beðið um umboðið á Bessastöðum í skilgreindum tilgangi til að mynda hina svonefndu ACD stjórn.
„Mér sýnist að þessi ríkisstjórn sé að verða til og ég held að hún verið til núnua um helgina eða eftir helgina. Ég held að þetta sé komið það langt að það verði ekki aftur snúið“, sagði Egill. Stefanía segir að stjórnin muni virka sem einhvers konar minnihlutastjórn með eins manns meirihluta: „Það þýðir jafnframt að það þarf að leita eftir samstarfið við aðra þingflokka um veigamikil mál. Og það má svo sem vel vera þegar tímar líða fram að þá komi einhver annar þingflokkur inn í þetta samstarf“.
Umsjónarmenn Þjóðbrautarinnar eru Linda Blöndal og Sölvi Tryggvason