Ólafur Arnarson, pistlahöfundur og þáttastjórnandi á Hringbraut segir Árna Pál Árnason iðrast of seint og of lítið, en hann fjallar um veika stöðu formanns Samfylkingarinnar í nýjasta pistli sínum hér á vefnum.
Árni er kominn fram á hengiflug og starir ofan í hyldýpið, skrifar Ólafur og segir að enda þótt Árni Páll biðji nú um fyrirgefningu pólitískra synda gleymi hann því að allt síðasta kjörtímabil hafi hann og aðrir aðstandendur ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur verið varaður við þeim mistökum sem hann var að gera: \"Það var glórulaust hjá honum að taka við frumvarpi, sem Gylfi Magnússon hafði látið semja áður en hann hrökklaðist úr embætti síðsumars 2010. Þetta frumvarp varð það sem við þekkjum sem Árna Páls lögin. Það var samið að forskrift Samtaka fjármálafyrirtækja og gekk svo langt gegn lögbundnum réttindum lántakenda að Hæstiréttur dæmdi lögin andstæð stjórnarskrá. Árni Páll hefur aldrei beðist afsökunar á þeim,\" skrifar Ólafur.
Mestu mistök Árna Páls hafi verið þau að kippa ekki verðtryggingunni úr sambandi í sinni ráðheratíð. Það hafi mikil og alvarleg mistök sem heimili og fyrirtæki súpi enn seyðið af. Verðtryggingin sé nefnilega vítistól, hönnuð til að tryggja ítrustu hagsmuni fjármálafyrirtækja og auðkýfinga á kostnað venjulegs fólks, heimila og fyrirtækja í landinu: \"En þessi mistök voru gerð með galopin augu því ýmsir vöruðu við afleiðingum þess að kippa ekki úr sambandi, skrifar Ólafur.
Meginvandi síðustu ríkisstjórnar, Árna Páls og þá ekki síður Jóhönnu, hafi verið sá að hlusta ekki á þjóðina og öll varnaðarorðin, hvort heldur er í Icesave eða öðrum stórmálum eftirhrunsáranna: \"Árni Páll viðurkennir mistök og biður um fyrirgefningu. Samfylkingin fær enga fyrirgefningu frá kjósendum fyrr en menn iðrast,\" skrifar Ólafur og segir Árna Pál enn tala tungum tveim um verðtrygginguna: \"Árni Páll þarf að sýna einlæga iðrun,\" skrifar Ólafur og hvetur aðra þingmenn Samfylkingarinnar til að gera það sama - og þá sé ef til vill hægt að bjarga flokknum \"en það verður varla undir forystu þeirra sem gerðu fátt annað en mistök á síðasta kjörtímabili og viðurkenndu þau ekki fyrr en pólitíski ferillinn virðist á enda genginn.\"