Jón gunn: of hratt farið á hellisheiði

Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins viðurkenndi í fréttaskýringarþættinum Kvikan sem sýndur var á Hringbraut í gærkvöld að of hratt hefði verið farið í virkjun jarðhita vegna stóriðju hér á landi. Það sýndu vandamál sem komið hefðu upp við Hellisheiðarvirkjun. \"Það er algjörlega rétt að forsendur í jarðvarmanum það hefur kennt okkur mikið...það hefur bent til þess að á Hellsiheiði höfum við förum hratt,\" sagði Jón Gunnarsson.

 Jón, sem kallaður hefur verið „holdgervingur stóriðjustefnunnar“, hefur ítrekað valdið usla á Alþingi vegna Rammaáætlunar og breytinga á henni. Hann ræddi stóriðjustefnu Íslendinga og virkjanastefnu í þættinum. Hann varði stefnu stjórnvalda og taldi hana lýsa mikilvægi fjölbreytileika í störfum auk þess sem þingmaðurinn vitnaði til hárrar hlutdeildar útflutnings, tengt stóriðju en viðurkenndi sem fyrr segir að í einstökum tilfellum hefði verið farið of geyst.

Kristín Vala Ragnarsdóttir prófessor í jarðvísindum við HÍ hefur gjörólíka sýn á stóriðjustefnu landsins og Jón. Kristín Vala skrifaði doktorsritgerð um jarðhita og talaði máli umhverfissinna í Kvikuþætti gærkvöldsins. Hún varar mjög við að gengið sé fram í virkjana- og stóriðjustefnu eins hratt og raunin er. Í Kvikunni kom fram að hún telur sjálfbærni og framtíð komandi kynslóða teflt í voða að óbreyttu. Íslendingar séu umhverfissóðar.

Þrjú kísilver eru í pípunum og miklar virkjanaframkvæmdir ýmist í gangi eða fyrirhugaðar. Jón sagði að Íslendingar yrðu að nýta auðlindir sínar. Stefnan væri hófleg þótt of hratt hefði verið gengið fram á vissum sviðum.

Einnig var í fréttaskýringarþættinum Kvikunni farið til Húsavíkur og rætt við heimamenn um fyrirhugað kísilver PCC. Þar var nýverið klippt á borða til að fagna upphafi framkvæmda. Hugur heimamanna er blendinn á þessum tímamótum, en mun fleiri jákvæðir en neikvæðir eins og fram kom í sjónvarpsþætti gærkvöldsins. Um 120 störf verða við kísilver PCC en hátíðarhöldin voru karllæg samkunda, enda verða það einkum karlar sem njóta góðs af störfunum, bæði á framkvæmdatíma sem og í verksmiðjunni sjálfri.