Það er of flókið að nefna sameinað sveitarfélag Garðs og Sandgerðis \"Suðurnes.\"
Þetta er álit nágrannasveitarfélaganna Grindavíkur og Voga. Óskað hafði verið eftir áliti nágrannanna á tillögum sem liggja fyrir um nýtt nafn. Nafnið Suðurnes var í þremur útfærslum; Suðurnesjabyggð, Suðurnesjabær eða Sveitarfélagið Suðurnes.
Í leiðbeiningum Örnefnanefndar er kveðið á um að nafn á sveitarfélagi skuli tengjast viðkomandi svæði sérstaklega. Ef nafnið tengist svæði sem ekki tilheyrir viðkomandi sveitarfélagi er ætlast til að viðkomandi sveitarfélag nái yfir meirihluta þess svæðis sem nafnið tengist og að meiri hluti íbúa svæðisins búi í því sveitarfélagi. Jafnframt þarf að liggja fyrir að önnur sveitarfélög á svæðinu mótmæli því ekki sérstaklega.
Í áliti sínu tók Bæjarstjórn Grindavíkur undir með bæjarráði Sveitarfélagins Voga sem var svohljóðandi: Bæjarráð bendir á að með því að velja nafn á sveitarfélagið sem innifelur orðið \"Suðurnes\" kunna að koma upp flækjustig gagnvart þeim samtökum og sameiginlegu stofnunum sem eru í landshlutanum og kenna sig við Suðurnes.