Ferðafélag Íslands (FÍ) fagnar um þessar mundir 90 ára afmæli. Starfsemi ársins hefur borið þess merki með fjölbreyttri göngudagskrá ásamt viðburðum og útgáfu.
Á þeim 90 árum sem liðin eru frá stofnun félagsins hafa verið farnar meira en 4000 ferðir með yfir 250.000 þátttakendum. Byggðir hafa verið 40 fjallaskálar og 60 göngubrýr reistar.
Lagðir tugir merktra gönguleiða og gefnar út 90 árbækur. Félagsmenn FÍ eru um 8.000.
Stofnfélagar FÍ fyrir 90 árum voru 63 talsins.