Helgi Hrafn Gunnarsson þingflokksformaður Pírata leggur til þrjú einföld og ódýr ráð til aukins lýðræðis í nýjasta pistli sínum á hringbraut.is, en þar segir hann að kenningin um þrískiptingu valds á milli löggjafarvalds, framkvæmdavalds og dómsvalds sé í reynd orðin tóm á Íslandi: Reyndin sé hinsvegar sú að nokkrir þingmenn, þeir efstu á listum stjórnarflokka, fá ekki bara sinn skerf af löggjafarvaldinu heldur framkvæmdavaldið í kaupbæti og hafi því hvort tveggja löggjafarvald og framkvæmdavald. Þetta sé einfalt að laga með því að setja þá reglu að enginn geti bæði verið ráðherra og þingmaður á sama tíma.
Helgi Hrafn telur í öðru lagi að þjóðin eigi að hafa formlega leið til að ákveða hvenær vafi leikur á lýðræðislegu lögmæti. Það standist enga skoðun að ef þjóðin sé nokkurn tíma ósammála ríkisstjórn, þá sé hún sjálfkrafa rúin öllu trausti. Það sé hluti af ábyrgri stjórnun að taka leiðsögn skjólstæðinga sinna.
Loks biður Helgi Hrafn um málskotsrétt minnihluta þingsins, þ.e. að þriðjungur þings geti skotið máli til þjóðarinnar. Athuga megi þó að þetta vald verði ekki hugsað til þess að auka tíðni þjóðaratkvæðagreiðslna með neinum teljandi hætti heldur til þess að bæta vinnubrögðin á Alþingi. Slíkur réttur þingmanna myndi myndi binda enda á leiðinlegasta og ljótasta vopnið sem stjórnarandstaðan hafi, sem í daglegu tali sé kallað málþóf.