Óðinstorg kostaði 657 milljónir: „Flott og dýrt skal það vera á torgi Dags“

„Flott og dýrt skal það vera á torgi Dags B. Eggertssonar, borgarstjóra,“ segir Vigdís Hauksdóttir, oddviti Miðflokksins, í færslu á Facebook. „Nú liggur endanlegur kostnaður við endurgerð Óðinstorgs og nágrennis fyrir. Verkið kostaði 657 milljónir sem skiptast svo. Reykjavíkurborg reiddi fram 474 milljónir og Veitur 183 milljónir. Minnt er á að Veitur eru í eigu Reykjavíkurborgar.“

Hún segir það vekja athygli hversu hár hönnunarkostnaður sé, eða 60 milljónir króna, og að 48 milljónum króna hafi verið varið í snjóbræðslu.

„Það er skelfilegt að horfa upp á að þegar fólk kemst í áhrifastöður að það skuli nota almannafé í eigin þágu eins og í þessu tilfelli sem leiðir til hækkunar fasteignaverðs,“ segir Vigdís og vísar til þess að borgarstjóri býr við Óðinstorg.

„Í einhverjum löndum sem við berum okkur saman við væri þetta flokkað sem spilling af verstu gerð og jafnvel hjá viðkomandi aðilum ef aðrir flokkar í borgarstjórn hefðu nýtt sér útsvarstekjur borgarinnar með þessum hætti. Það er ekki það sama að vera Jón eða séra Jón eða vera hægra megin eða vinstra megin á litrófi íslenskra stjórnmála.“

Birtir Vigdís svo myndir af Óðinstorgi: