Óðinn vill að Sigríður Dögg fordæmi Kristrúnu Frosta vegna skrifa um Viðskiptablaðið

Óðinn, pistlahöfundur Viðskiptablaðsins, skýtur föstum skotum til baka á Kristrúnu Frostadóttur, frambjóðanda Samfylkingarinnar. Kristrún sagði, eins og frægt er orðið, að Óðinn hafi reynt að kúga sig eftir að hún gagnrýndi Ásgeir Jónsson seðlabankastjóra.

„NEI, þið fáið ekki að kúga mig og fleiri konur á næstu mánuðum og árum með svona ömur­legum, nafn­lausum á­róðri,“ sagði hún. „Það þarf ein­hver að segja STOPP og það geri ég núna. Við­skipta­blaðið, sem kallar sig frétta­miðil at­vinnu- og við­skipta­lífsins hefur staðið fyrir nafn­lausum á­róður­s­pistli, „Ó­ÐINN“, viku­lega.“

Óðinn, sem er á ábyrgð Trausta Hafliðasonar ritstjóra Viðskiptablaðsins, fer yfir þetta allt á heilli blaðsíðu í blaði dagsins. Vísar hann því alfarið á bug að hafa komið með neitt nema málefnalega gagnrýni á Kristrúnu, þá hafi gagnrýnin alls ekki snúið að kynferði hennar og í raun gagnrýni hann frekar karlmenn heilt á litið.

„Í sannleika sagt er þetta útspil Kristrúnar afar aumt og ljóst að þeir sem tóku undir með henni höfðu ekki lesið pistilinn,“ segir Óðinn.

Vitnar hann svo í orð Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, fyrrverandi ráðherra, sem sagði: „Ef ekki væri fyrir óhlýðnar konur sem láta ekki stjórnast af valdboði frekra karla þá værum við mjög skammt komin á braut lýðræðis og jafnréttis. Smátt og smátt hafa konur verið að færa út mörkin og þær sem þora, geta og vilja láta ekki skammir eða illt umtal stoppa sig. Áfram Kristrún Frostadóttir.“

Óðinn segir augljóst að Ingibjörg Sólrún hafi ekki lesið pistilinn sem hún gagnrýndi: „Ekkert af þessum orðum Ingibjargar Sólrúnar á sér stoð í skrifum Óðins. Ekkert“

Óðinn segir þetta klámhögg hjá Kristrúnu. Það þurfi að kryfja orð stjórnmálamanna til mergjar og jafnvel hæðast að þeim, slíkt sé gert í lýðræðissamfélögum. „Athugasemdir Kristrúnar benda til þess að hún sé annarrar skoðunar um það. Einhverjum kynni að þykja það til marks um að hún ætti e.t.v. síður erindi í stjórnmál með slíka afstöðu.“

Óðinn segir að orð hennar séu nánast hótanir:

„Enn annað má nefna í þessu samhengi, en það er sú staðreynd að Kristrún lætur sér svo mislíka við rökstudda gagnrýni á sig, að hún segir „stopp“ og vandar Óðni og Viðskiptablaðinu ekki kveðjurnar, svo stappar nærri hótunum. Höfum í huga að Kristrún er ekki hver sem er. Hún er í oddvitasæti Samfylkingarinnar í Reykjavík suður og fullyrt er að hún sé ráðherraefni flokks síns komist hann í ríkisstjórn. Viðskiptablaðið er hins vegar lítið og sérhæft vikurit, sem líkt og aðrir fjölmiðlar er nú upp á náð fjárveitingarvaldsins komið. Hver er í valdastöðunni og hver er fórnarlambið hér?,“ spyr Óðinn.

Kallar hann eftir stuðningi frá Sigríði Dögg Auðunsdóttur, formanni Blaðamannafélagsins, og vill að hún fordæmi Kristrúnu:

„En Viðskiptablaðið mun auðvitað ekki láta beinar eða óbeinar hótanir á sig fá. Óðinn treystir því að Sigríður Dögg Auðunsdóttir, hinn skeleggi formaður Blaðamannafélagsins taki til varnar og fordæmi þessa árás á frjálsa fjölmiðlun.“