Óðinn Jónsson, dagskrárgerðarmaður á Rás 1 og fyrrum fréttastjóri Ríkisútvarpsins á stormasömum tímum, segir á fési sínu í dag að menntamálaráðherra hugsi smátt þegar kemur að framtíð Ríkisútvarpsins.
Rót ummæla Óðins er viðtal í Fréttablaðinu í dag við Illuga Gunnarsson menntamálráðherra. Túlkar hinn fyrrverandi fréttastjóri það svo, án þess að Illugi segir það beinum orðum í viðtalinu, að nú sé komið að því að „minnka Fréttastofuna enn frekar,“ eins og Óðinn orðar það. Máli sínu til stuðnings vitnar gamli fréttastjórinn, sem vel er kunnugur átökunum um almannaútvarpið eftir áratuga reynsla innan stofnunarinnar, til kafla í viðtalinu þar sem haft er eftir Illug að velta megi fyrir sér fréttastofunni. Svo segir Illugi þetta: „Það má benda á að magn af fréttum í dag er margfalt meira en var fyrir örfáum árum. Aðgengi okkar að erlendum fréttamiðlum er allt annað og meira en áður var.“
Óðinn beitir kaldhæðni og segir að mikill metnaður felist í ummælum ráðherra fyrir hönd íslenskrar fréttamennsku og fjölmiðlunar. Að ekki sé talað um íslenska menningu og tungu.
Nokkir hafa brugðist við færslu Óðins á facebook, þar sem því er m.a. mótmælt að það liggi fyrir af orðum ráðherra að hann hyggist skera niður innan fréttastofunnar. Hörð gagnrýni á Rúv er aftur á móti daglegt brauð úr herbúðum sjálfstæðismanna og þá ekki síst frá ritstjóra Morgunblaðsins, Davíð Oddssyni.