Óðinn Jónsson, fyrrverandi fréttastjóri RÚV, segir viðbragð Samherja við umfjöllun Kveiks og Stundarinnar um meinta mútustarfsemi í Namibíu vera hrokafullt og ómerkilegt. Í samskiptum Páls Steingrímssonar, skipstjóra og pistlahöfundar, og Örnu Bryndísi Baldvins McClure, lögmanns Samherja, í Stundinni í dag kemur nafn Óðins fyrir.
Páll sendi Örnu skilaboð um að það þurfi að „sparka í punginn á þessu liði“. Hún tók undir það og sagði: „Ég ætla að gera það. Eitt spark í punginn… Og þá er hann… Sprunginn!,“ og hló.
Þá spurði Páll hvort hann muni fá spark í punginn, því svarar lögmaðurinn:
„Þú færð ekkert spark!! En Helgi, Óðinn Jóns, Stefán Eiríks, Már Guðmunds, Ingibjörg Guðbjarts og Stefán Jóhann fá á baukinn.“
Óðinn fjallar um þetta í færslu á Facebokk og segir:
„Las í Stundinni að Arna Bryndís Baldvins McClure, lögfræðingur Samherja og kjörræðismaður Kýpur á Íslandi, hafi viljað að ég fengi á baukinn. Hressilega orðað en illa hugsað,“ segir hann. „Aðal skotmarkið er Helgi Seljan en við nokkrir spörfuglar erum hafðir með í sigtinu. Allt er þetta viðbragð samherjanna með ólíkindum: hrokinn og ómerkilegheitin.“ Hann sendir lögmanninum svo kveðju: „En af því að við Arna Bryndís erum bæði af Upsa-ættinni sendi ég henni góða kveðju norður yfir heiða.“