Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins var annar gesturinn í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni fyrr í dag. Hinn gesturinn var Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri-grænna.
Bjarni ræddi meðal annars um forgangsröðun fráfarandi ríkisstjórnar. Þessa röðun gagnrýndi Katrín sem og framtaksleysi fráfarandi stjórnar. Hún vill breyta forgangsröðun og skapa samtöðu um það hvert skal stefna.
Bjarni spurði hvers væri að vænta frá vinstri stjórn og má helst ráða af máli hans að helst væri það að sundra þjóðinni.
Hringrbaut bar efni þáttarins undir heimildarmann sem vel þekkir til íslenskra stjórnmála.
Hann sagði:
\"Vinstri-grænir staðhæfa að ekki séu það áform þeirra að hækka skatta. Hins vegar ætla þeir að hliðra til innan skattkerfisins \"...til að gera það réttlátara.\" eins og segir á vef þeirra. Katrín sagði á landsfundi Vinstri-grænna að stærsta verkefnið sé að koma á alvöru stöðugleika sem næst með breyttum vinnubrögðum og að koma hreint fram. Þetta með að koma hreint fram því leiðir hugann að sönnum áformum Vinstri-grænna í skattamálum. Hækka þarf skatta á almenning og fyrirtæki til að standa undir kosningaloforðumVinstri-grænna. Þau segjast munu reka sanngjarna skattastefnu með öflugri innheimtu. Allir tekjuhópar munu sem sagt borga hærra og hærra hlutfall af tekjum sínum í skatta.\"