Oddvitar stjórnarflokkanna vilja fjölga kjördæmum á landsbyggðinni

Njáll Trausti Friðbertsson, Ingibjörg Ólöf Isaksen og Óli Halldórsson, oddvitar ríkisstjórnarflokkanna í Norðausturkjördæmi, vilja öll fjölga kjördæmum á landsbyggðinni. Í viðtali við Austurfrétt segjast þau alls ekki vilja að Ísland verði að einu kjördæmi. „Ég hef enga trú á að gera Ísland að einu kjördæmi. Ég hallast að því að skýrt umboð úr kjördæmum um land allt sé einn af hornsteinum lýðræðiskerfisins okkar. Ef gera ætti einhverjar breytingar á kjördæmaskipan þá teldi ég raunar farsælla að fjölga þeim frekar en fækka,“ segir Óli Halldórsson, oddviti VG.

„Ef eitthvað væri þyrfti hugsanlega að fjölga kjördæmum því það er mjög mikilvægt að ná fram vilja fólksins og að þeir alþingismenn sem veljast hverju sinni nái að fylgja eftir og vinna að hagsmunum umbjóðenda sinna,“ segir Ingibjörg.

„Kjördæmin eru landfræðilega mjög stór og með því að fjölga þeim yrðu kjörnir fulltrúar á þingi nær sínum kjósendum og betur tengdir sínu svæði,“ segir Njáll Trausti.

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, og Eiríkur Björn Björgvinsson, oddviti Viðreisnar, vilja hins vegar jafnt atkvæðavægi.

„Samfylkingin hefur það í stefnu sinni að laga misvægi atkvæða og landið verði eitt kjördæmi [...] Þótt margt sé áhugavert við að fjölga kjördæmum t.d. á Norður- og Austurlandi, er ég ekki viss um að það yrði gæfuspor, enda eiga íbúar Norðausturkjördæmis margt sameiginlegt og hafa hagsmuni af því að sameina krafta sína á þingi,“ segir Logi.

„Í tengslum við breytingar á kjördæmaskipan vil ég taka umræðuna um að efla sveitarstjórnarstigið og koma meira valdi til íbúanna,“ segir Eiríkur.

Einar Brynjólfsson, oddviti Pírata, vill gera landið að einu kjördæmi.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, svaraði ekki fyrirspurnum.