Hvorki Oddný G. Harðardóttir, formaður Samfylkingarinnar né Össur Skarphéðinsson, oddviti í Reykjavík suður næðu kjör yrði kosið í dag. Þetta er samkvæmt nýrri könnun sem gerð var fyrir Morgunblaðið og birt er í dag. Kannaður var hugur kjósenda dagana 23.september til 5.október. Samfylkingin mælist með 6 prósenta fylgi og formaðurinn sem leiðir listann í Suðurkjördæmi kæmist þar með ekki inn á þing miðað við útreikninga sem blaðið birtir í dag.
Aðrar helstu niðurstöður eru að Sjálfstæðisflokkurinn fengi 26 prósent atkvæða, Píratar 20 prósent og Vinstri græn 17 prósent ef gengið yrði til alþingiskosninga nú.
Viðreisn hlyti 12 prósent atkvæða og Framsóknarflokkurinn 10 prósent en þannig næði Karl Garðarsson, alþingismaður ekki endurkjöri sem oddiviti í Reykjavíkurkjördæmi norður.
Aðrir flokkar næðu ekki inn á þing. Björt framtíð mælist með 4 prósenta fylgi, Flokkur fólksins með 3 prósent og Íslenska þjóðfylkiningin 2 prósent.
Hringt var í 1750 manna úrtak og einnig notast við 1000 manna úrtak úr svonefndum netpanel Félagsvísindastofnunar. Svör fengust frá 977 kjósendum og var svarhlutfall 57 prósent.