Oddur rekinn

Kirkjuráð þjóðkirkjunnar ákvað í byrjun mánaðarins að reka Odd Einarsson, framkvæmdastjóra kirkjuráðs. Hann var látinn hætta þegar í stað. Frá þessu er greint á vef Morgunblaðsins en blaðið hefur fundargerð kirkjuráðs undir höndum.

Ástæðan fyrir brottrekstrinum er samkvæmt tölvupósti framkoma Odds í garð annars starfsmanns en í póstinum var Oddur sakaður um óviðeigandi framkomu í garð verkefnastjóra á biskupsstofu.

Eins og staðan er núna er enginn framkvæmdastjóri á svæðinu og skipta starfsmenn Biskupsstofu og kirkjuráðs á milli sín verkefnum framkvæmdastjóra.