Oddur fær tæpar 20 milljónir frá kirkjunni en þarf að skila fartölvunni

Oddur Einarsson fær rétt tæpar 20 milljónir frá Kirkjumálasjóði eftir að hafa verið sagt upp sem framkvæmdastjóri kirkjuráðs í byrjun síðasta mánaðar. Á vef RÚV er greint frá því að Oddur verði á launum út ráðningarsamning sinn sem er 20 mánuðir. RÚV hefur samninginn undir höndum en þar kemur fram að samningurinn falli úr gildi 30. júní 2021. Oddi mun hafa verið sagt upp störfum eftir að kvartað var yfir framkomu hans í garð verkefnisstjóra á Biskupsstofu.

Oddur fær 1,2 milljónir í laun fyrir nóvember, desember og janúar, eftir það fær hann grunnlaun sem eru 950 þúsund til 30. júní. Eru þetta rétt tæpar 20 milljónir.

Oddur er annar framkvæmdastjórinn hjá kirkjuráði á skömmum tíma sem gerir starfslokasamning en Ellisif Tinna Víðisdóttir sem sagt var upp fyrir þremur árum eftir deilur við biskup var á fullum launum í 12 mánuði og fékk einnig yfirvinnu og orlof.

Á RÚV segir að þó svo að Oddur fari í aðra vinnu munu þessar tekjur ekki skerðast og myndi þá halda fullum launum. Í samningum segir þó að Oddur verði að skila fartölvunni sem hann hafði til umráða.