Samfylking eigi að vera með 30% fylgi

\"Niðurstöður könnunarinnar eru ánægjulegar og gefa mér og mínum stuðningsmönnum byr undir báða vængi,\" segir Oddný G. Harðardóttir þingkona Samfylkingar í samtali við Hringbraut um mælingu sem gerð hefur verið vegna formannsslags fram undan í flokknum.

Oddný nýtur mests fylgis í stöðu formanns Samfylkingarinnar samkvæmt  könnun Gallup. Hún mælist með 32,4 prósenta stuðning. Helgi Hjörvar er með 29,9%, Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, með 20%, Magnús Orri Schram með 12,3% og Guðmundur Ari Sigurjónsson, bæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi, með 5,5%.

Fimm vikur eru til stefnu. Rafrænar kosningar meðal félagsmanna um formann fara fram 28. maí til hádegis 3. júní. Þeir einir geta tekið þátt í kosningunni sem verða skráðir í Samfylkinguna fyrir kl. 12 á hádegi þann 7. maí næstkomandi. Oddný bendir á að það geti fleiri framboð til formanns.

\"Ég skilaði inn formlegu bréfi síðasta miðvikudag um framboð mitt með listum meðmælenda, allt samkvæmt lögum flokksins. Næsti rúmi mánuður verður því undirlagður hjá mér svo ég nái því markmiði að verða næsti formaður Samfylkingarinnar. Ein góð mæling segir ekki alla söguna en hefur góð áhrif á þá sem mælast vel,\" segir Oddný.

Hvaða vonir gerir hún sér um fylgi flokksins í næstu kosningum?

\"Kannanir sýna að Samfylkingin, stóri jafnaðarmannaflokkurinn á Íslandi, er núna með fylgi sem mælist undir 10%. Það finnst engum í Samfylkingunni ásættanlegt og því var formannskjöri og landsfundi flýtt bæði til að ræða áherslur jafnaðarmanna og til að velja forystufólk til næstu tveggja ára. Við eigum að vera með 30% fylgi og við þær aðstæður sem eru núna í stjórnmálunum ætti það að hafa gerst nokkurn veginn af sjálfu sér. Við höfum því verk að vinna. Forystan þarf nauðsynlega að endurnýja umboð sitt eða færa öðrum keflið.\"