Oddný útilokar ekki að mótmæla pence á bessastöðum: „mér dettur ekki í hug að skrópa“

Koma Mike Pence, varaforseta Bandaríkjanna hingað til lands, hefur verið mikið í fréttum. Ekki liggur ennþá fyrir hvort Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra muni hitta hann, en það fer eftir því hvort Pence framlengi dvöl sína hér, eða ekki.

Það sem er þó vitað er að Pence mun snæða hádegisverð að Bessastöðum í boði Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands, ásamt fulltrúum þeirra flokka sem eiga sæti á Alþingi.

Greint er frá þessu á vef DV.is

Fulltrúi Samfylkingarinnar verður Oddný G. Harðardóttir, en óhætt er að segja að skoðanir Pence séu eins langt frá stefnu Samfylkingarinnar eins og hægt er.

Eyjan spurði Oddnýju hvort hún hygðist koma fram einhverjum skilaboðum til Pence í hádegisverðinum:

„Ég veit ekkert hvaða tækifæri ég hef, en ef ég hef tækifæri til þess að ræða við hann um loftslagsmál og mannréttindamál þá geri ég það. En þetta er bara stuttur hádegisverður,“

sagði Oddný í dag.

Þetta er brot úr frétt DV. Hér má lesa hana í heild sinni.