Oddný tekur við formennskunni

\"Við þurfum skýra leiðsögn fyrir komandi ár\", sagði Oddý G. Harðardóttir, nýr formaður Samfylkingarinnar. Oddný G. Harðardóttir var kosinn nýr formaður Samfylkingarinnar með tæplega 60 prósent atkvæða.Talning fór fram í þremur hlutum og var Oddný með meirihluta atkvæða í öllum þremur talningum \"Við erum til í slaginn\", sagði Oddný og salurinn tók undir með lófataki. Þrír mótframbjóðendur Oddnýjar stigu upp á svið og tjáðu sig stuttlega. Guðmundur Ari Sigurjónsson kom fyrstur og sagði einfaldlega í glensi \"Minn tími mun koma\" og féll það í góðan jarðveg fundarmanna. Magnús Orri Schram bað fundinn að hrópa ferfalt húrra fyrir Oddnýju og Helgi þakkaði henni og öllum hinum fyrir drengilega baráttu.

Oddný hefur verið alþingismaður Suðurkjördæmis síðan 2009. Hún var fjármálaráðherra 2011–2012 og fjármála- og efnahagsráðherra árið 2012. Oddný var formaður þingflokks Samfylkingarinnar 2011–2012 og 2012–2013.