Gestur Sigmundar Ernis í Mannamálum í gærkvöld á fyrir höndum mikið verkefni við að reisa við fylgi jafnaðarmanna á Íslandi, en það var einmitt Oddný G. Harðardóttir sem settist í gráa stólinn að þessu sinni.
Þáttinn má nú sjá hér í heild sinni, en inni á vef stöðvarinnar, hringbraut.is er einnig að finna styttri klippur úr viðtalinu.
Viðtalið við Oddnýju er annars einlægt og einkar persónulegt og má þar sjá hversu erfitt er fyrir hana að rifja upp móðurmissinn þegar hún var rétt 25 ára gömul og nýbyrjuð að búa sjálf, en móðir hennar, kjaftfor og ákveðin alþýðukona setti sterkan svip á æsku Oddnýjar, enda var hún einstæð móðir í fiski og flestum öðrum verkum suður í Garði og virtist óbugandi.
Oddný ræðir árin sín undir Jökli og vestur á Núpi, en þangað var hún \"ekki send\" og minnist þess tíma í rósrauðu ljósi, enda kannast hún alls ekki við að þar hafi verið einhverjir vandræðaunglingar á ferð. Það er og ánægjulegt að heyra hana segja söguna af því þegar hún og stallsystur hennar í Garði afréðu að skella sér í pólitíkina, en þar var óvenjulega leiðin farin - og þá ákvað hún líka að fara í þingframboð undir sérkennilegum kringumstæðum.
Aðspurð hvort hún sé rétta manneskjan til að leiða Samfylkinguna upp úr öldudalnum er svarið skýrt og klárt: Ég er rétta manneskjan, segir hún og telur sig raunagóða í mótbyr, vön erfiðum prófraunum sem stærðfræðikennari til margra ára.
Mannamál eru frumsýnd öll fimmtudagsklukkan 20:30.