Oddný: ættum að hafa áhyggjur af illuga

Mikil reiði ríkir víða meðal starfsmanna ríkisins sem komið hafa að menntun og þróun menntamála eftir umdeild orð sem Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra lét falla í vikunni.

Eins og Viðskiptablaðið greindi fyrst frá sagði Illugi er hann hélt tölu þegar lestrarforrit á vegum einkafyrirtækis var kynnt að opinbera kerfið væri lélegt í að bera á borð nýjungar í menntamálum.

 „Skólakerfið sjálft leysir þennan vanda ekki sjálft. Opinbera kerfið er ekki svo gott í að koma með nýjungar - og raunar er það frekar lélegt í því,“ sagði ráðherra og hefur vakið upp ramakvein meððal kennara og fræðimanna sem fordæma þennan málflutning þess yfirmanns mennta sem ætti að gæta hagsmuna eigin umbjóðenda og tala ekki um þá með niðrandi hætti. Illugi segir að nýsköpunarfyrirtæki séu betur til þess fallin að þróa lausnir við vandamálum menntakerfisins.

Alþingi verður sett næsta þriðjudag og eru þingmenn að koma sér upp vopnum sínum á félagsmiðlum og með bloggskrifum eftir friðsælt jólafrí. Oddný G. Harðardóttir, fyrrum ráðherra og núverandi þingmaður Samfylkingarinnar skrifar á eigin fésbók þar sem hún deilir frétt VB um málflutning Illuga:

„Hér talar menntamálaráðherra til fagfólks í skólakerfinu. Skemmtileg og hvetjandi kveðja til þeirra eða hitt þó heldur. Hann ætti kannski bara að leggja til að hærri fjárhæðum sé varið til skólaþróunar frekar en að skammast út í fólk sem árum saman hefur unnið meira og minna í sjálfboðavinnu við að þróa nýjungar í skólastarfi. Við eigum öll að hafa áhyggjur af menntakerfinu undir stjórn manns með slík viðhorf.“