Och-ziff capital með vöflur

Salan á Arion-banka kann að vera í uppnámi. Vogunarsjóðurinn Och-Ziff Capital hefur enn ekki lagt fram beiðni til Fjármálaeftirlitsins (FME) um heimild til að fara með virkan eignahlut í Arion-bankanum.

Och-Ziff Capital vogunarsjóðurinn keypti hlut í Arion-bankanum af Kaupþingi. Sagt er að forsvarsmenn Och-Ziff Capital meti stöðuna þannig að ekki sé á bætandi orðsporsvanda þann sem Och-Ziff Capital býr við.  Ef Fjármálaeftirlitið hafni beiðni félagsins um að eiganst virkan eignarhlut í Arion-banka.

Slík höfnun væri talin byggð á gögnum sem ykju ekki hróður Ocg-Ziff Capilat en vogunarsjóðurinn er með aðra starfsemi og er skráður á kauphöll í New York.

Vogunarsjóðurinn er einn stærsti sjóður sinnar tegundar í heiminum að sögn Morgunblaðsins.

Spillingarmál og hávær umræða tengd starfsemi fyrirtækisins í Afríku eru sögð orsakir þess að vöflur eru á stjórnendum sjóðsins um að biðja FME um fyrrgreinda heimild.   

rtá

Nánar www.vb.is  www.mbl.is