Óbyggðir íslands: mesta ófærð í 25 ár

Enda þótt hitatölurnar fari hækkandi yfir landinu svo miklu muni frá því í síðasta mánuði er ennþá vetrarlegt um að litast inn til landsins þar sem enn er að finna fádæma snjóalög miðað við árstíma.

Fyrsta Laugavegsgangan var farin í byrjun síðustu viku og sóttist seint, enda snjóalög yfir hálfri leiðinni og á köflum illfært á þeim slóðum sem vanalega eru auðar á þessum árstíma. Næturfrost var ennþá inn til landsins um þarsíðustu helgi.

Margir hálendisvegir eru  illfærir eða ófærir, ekki einungis vegna vatnavaxta og aurbleytu heldur hreinlega sakir þykkra fanna sem liggja víða yfir þeim á löngum köflum.

Vanir fjallamenn segja að ástand vega inn til óbyggðanna hafi ekki verið jafn slæmt í aldarfjórðung hið minnsta - og óttast þeir að það muni lítt skána á næstu dögum sakir þeirra vatnavaxta sem búast má við eftir hlýindi síðustu dægra.

Myndin sem fylgir þessari frétt var tekin við Hrafntinnusker fyrir tæpum mánuði en þar var þá þriggja metra jafnfallinn snjór. Enn eru miklar fannir við skálann og segja staðkunnugir að hann muni vart fara allur á þessu sumri.