Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 4,5%.
Í tilkynningu frá bankanum í morgun segir að verðbólga sé enn lítil og lítils háttar lækkun verðlags mælist sé horft fram hjá áhrifum húsnæðiskostnaðar. Lítil alþjóðleg verðbólga og stöðugt gengi krónu hafi haldið aftur af verðbólgu og vegið á móti áhrifum töluverðra launahækkana innanlands. Verðbólguhorfur hafi hins vegar versnað frá síðustu spá Seðlabankans. Líkur á hagstæðu samspili lítillar innfluttrar verðbólgu og hóflegra kjarasamninga virðist nú hverfandi, enda hafi verðbólguvæntingar hækkað frá síðustu spá eftir að hafa lækkað í markmið í upphafi árs. Samkvæmt grunnspá bankans fari verðbólga yfir markmið strax í upphafi næsta árs og líklegra sé að verðbólga verði meiri en spáð er en að hún verði minni. Framvinda kjaraviðræðna eftir að spáin var gerð hafi aukið þessa hættu enn frekar.
Í tilkynningunni segir jafnframt: "Vaxtalækkun Seðlabankans undir lok síðastliðins árs var byggð á snarpri hjöðnun verðbólgu og lækkun verðbólguvæntinga sem leiddi til hækkunar raunvaxta umfram það sem efnahagsástand og nærhorfur voru þá taldar gefa tilefni til. Í yfirlýsingum nefndarinnar á þeim tíma var hins vegar bent á að miklar launahækkanir og sterkur vöxtur eftirspurnar gætu grafið undan nýfengnum verðstöðugleika og valdið því að hækka yrði vexti á ný. Þróun kjaraviðræðna að undanförnu ásamt hækkun verðbólguvæntinga og vísbendingum um öflugan vöxt eftirspurnar benda til þess að þessar aðstæður séu nú að skapast og því líklegt að hækka þurfi vexti þegar á næsta fundi nefndarinnar í júní."