Óborganlegt myndskeið: sjáðu brynjar siða pál til – „ég biðst afsökunar á þessu“

Umræður um þungunarrof hafa verið hatrammar á Alþingi í dag og ýmis hörð ummæli látin falla. En um klukkan fjögur í dag átti sér stað skondið atvik sem fékk þingmenn til að gleyma sér í augnablik brosa út í annað. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður Pírata hafði þá nýlokið máli sínu í pontu og þá var röðin komin að Páli Magnússyni þingmanni Sjálfstæðisflokksins að veita andsvar. Brynjar hafði ekki náð að kynna Pál til leiks þegar hann hafði tekið sér stöðu í ræðustól.

Að mati Brynjar var því ekki annað í stöðunni en að siða þingmanninn aðeins til og vakti það mikla lukku í þingsal. Svar Páls eftir að hafa hlýtt á Brynjar var einfaldlega:

„Virðulegi forseti, ég biðst afsökunar á þessu ...“

Þá deildi Páll myndskeiðinu á Facebook og sagði: „Ef maður þarf að láta Brynjar Níelsson, af öllum mönnum, kúska sig til fyrir skort á mannasiðum - ja, þá er kominn tími til að hugsa sinn gang!“