Öbí segir öryrkja hlunnfarna um milljarða

Tryggingastofnun ríkisins (TR) hefur hlunnfarið stóran hóp öryrkja um milljarða króna á undanförnum árum. Bætur til yfir þúsund einstaklinga hafa verið skertar á grundvelli búsetu og stenst sú lagaframkvæmd TR ekki. Þetta staðfestir velferðarráðuneytið sem segir í bréfi til velferðarnefndar Alþingis að TR hafi haft yfir hálfan milljarð af öryrkjum á hverju ári um margra ára skeið. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Öryrkjabandalagi Íslands (ÖBÍ).

Í tilkynningunni segir að ÖBÍ hafi um langt skeið barist fyrir því að TR leiðrétti framkvæmd sína á útreikningi svonefndra búsetuskerðinga. Bandalagið aðstoðaði skjólstæðing sinn við að skjóta málinu til Umboðsmanns Alþingis. Umboðsmaður Alþingis birti síðastliðið sumar álit sem er áfellisdómur yfir aðferðum TR í þessum málum. Málið hefur síðan verið á borði velferðarnefndar Alþingis og velferðarráðuneytisins.

Greint er frá því að fram komi í bréfi velferðarráðuneytisins til velferðarnefndar, dagsett 21. desember 2018, að viðurkennt sé að TR eigi að og muni endurgreiða örorkulífeyrisþegum sem urðu fyrir þessum grimmu skerðingum. Fram kemur í bréfinu að TR hafi hlunnfarið um eitt þúsund manns árlega um ríflega 500 milljónir króna á ári. Daníel Isebarn, lögmaður Öryrkjabandalags Íslands segir þetta hafa viðgengist í a.m.k. 10 ár þannig að það mætti því auðveldlega segja TR hafa hlunnfarið öryrkja um a.m.k. 5-6 milljarða króna.

ÖBÍ telur því ljóst að leiðrétta þurfi a.m.k. áratug aftur í tímann. Í bréfi velferðarráðuneytisins kemur þó fram að til standi að leiðrétta það sem fólk var hlunnfarið um fjögur ár aftur í tímann, en ekki hefur verið haft samráð við ÖBÍ vegna málsins.

„Menn viðra hugmyndir um að greiða einungis fjögur ár, jafnvel þótt árin séu 10 eða jafnvel 25. Það er ótrúlegt að ætla að reyna að bera fyrir sig fyrningu í svona máli, það er engin skylda á ríkinu að gera það. Ríkið er að gæla við þá hugmynd að greiða bara hluta til baka af því sem haft var ólöglega af fólki, fólki sem er með allra minnstu tekjurnar. Ég trúi því ekki að þetta endi þannig, ráðamenn hljóta að sjá að svoleiðis gerir maður ekki,“ segir Daníel auk þess í tilkynningunni.