Öbí: hættið að refsa öryrkjum

„Ef skynsemi, réttlæti og vilji til að breyta til batnaðar, ráða gjörðum stjórnvalda, hlýtur „króna á móti krónu“ skerðingin að verða afnumin strax, þannig staðfestu stjórnvöld vilja til velferðar í verki. Vilji er allt sem þarf,“ segir Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands í ítarlegri umsögn bandalagsins um frumvarp þar sem lagt er til að sérstök uppbót til framfærslu verði afnumin.

Þuríður Harpa bendir jafnframt á að afnám „krónu á móti krónu“ skerðingarinnar sé ein af þeim úrbótum sem megi „framkvæma strax ef vilji er fyrir hendi, án þess að taka upp starfsgetumat eða ljúka heildarendurskoðun á almannatryggingalögunum“. Hún leggur afdráttarlaust til að frumvarpið verði að lögum.

Í umsögninni er bent á að „Króna á móti krónu“ skerðing hittir það fólk verst sem hefur lægstu framfærsluna í íslensku samfélagi og ef stjórnvöld vilja vinna gegn fátækt ætti afnám hennar að vera eitt af þeirra fyrstu verkum. Til ÖBÍ leitar fólk daglega, sem er í mjög alvarlegri stöðu vegna þessara 100% skerðinga og má með sanni segja að hér sé um kerfisbundið ofbeldi að ræða. Jafnframt er þar bent á að í þessu sambandi sé ekki rétt að tala um „kostnað“ af hálfu ríkissjóðs og að afnám þessara skerðinga yrði mikilvægur hvati til að fólk með skerta starfsgetu sæki af krafti á vinnumarkað.

Halldóra Mogensen, formaður velferðarnefndar Alþingis og þingmaður Pírata er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins. Hún hefur tíundað kosti þess að þetta réttindamál verði að lögum, áháð hugmyndum um starfsgetumat. Þingmenn úr mörgum flokkum hafa tekið í svipaðan streng. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, hefur bent á að stuðningur við afnám „krónu á móti krónu“ sé víða í þinginu. Óli Björn Kárason, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur jafnframt nefnt sérstaklega að þessar skerðingar verði að afnema fyrir vorið.

Við þetta má bæta að Mannréttindaskrifstofa Íslands styður að frumvarpið verði að lögum og bendir á að skerðingarnar í núverandi mynd vinni gegn mannréttindum. Sama gera Landssamtökin Þroskahjálpsem jafnframt benda á að starfsgetumat og heildarendurskoðun almannatrygginga hangi ekki saman við samþykkt þessa frumvarps. Þá bendir Henný Hinz hagfræðingur Alþýðusambands Íslands á það í umsögn sinni að það verði að „koma í veg fyrir „krónu á móti krónu\" skerðingar sem eru með öllu óásættanlegar“.

ÖBÍ styður og leggur ríka áherslu á að frumvarp um afnám „krónu á móti krónu“ skerðinga verði að lögum. Afnám „krónu á móti krónu“ skerðingar er ein af þeim leiðréttingum (lagabreytingum) sem örorkulífeyrisþegar hafa kallað eftir í áraraðir.

Fyrir utan að flækja kerfið allverulega heldur „króna á móti krónu“ skerðingin örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegum í fátækt. Fólki sem stendur verst fjárhagslega er gert ómögulegt að auka ráðstöfunartekjur sínar þrátt fyrir að hafa einhverjar tekjur annars staðar frá, svo sem atvinnu-, lífeyrissjóðs-, eða fjármagnstekjur. Fólki er refsað fyrir þá viðleitni að reyna að bjarga sér.

ÖBÍ hefur á árinu fundað með öllum þingflokkum um brýn hagsmunamál og þar á meðal um afnám „krónu á móti krónu“ skerðinga og lagt ofuráherslu á að hana þurfi að afnema strax. Almennt hafa þingmenn tekið vel í þessa kröfu okkar og sjá í hendi sér að ekki er hægt að afnema þessa skerðingu gagnvart eldri borgurum og láta örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega sitja eftir. Gæta þarf jafnræðis á milli hópa í sömu eða svipaðri stöðu í lagasetningu. Einnig hafa forsvarsmenn ÖBÍ átt fundi með félags- og jafnréttismálaráðherra og borið sama mál upp við hann, en hann hefur lýst því yfir að ekki er hægt að afnema „króna á móti krónu“ skerðingu fyrr en breytingar verði gerðar á almannatryggingakerfinu og nýtt starfsgetumat líti dagsins ljós. Þessu er ÖBÍ ósammála. Það hvernig fólk er metið til örorku og hvernig greiðslu lífeyris vegna örorku er háttað er sitt hvor hluturinn.