Frá þessu er greint í fréttum RÚV í morgun, daginn eftir að repúblikaninn Paul Ryan, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings tók undir málflutning hátt á fjórða tugs ríkisstjóra og forsetaframbjóðenda úr röðum repúblikana sem viðrað hafa hugmyndir um að fresta móttöku flóttafólks frá Sýrlandi.
Obama var óvenju harðorður um þennan málflutning repúblikana, að því er segir í frétt RÚV, en hann sakaði bandaríska hægrimenn um að gera ekkjur og munaðarleysingja að ófreskjum í skammarlegum málflutningi sínum og hræðsluáróðri. Sagði hann umræðuna um komu flóttafólksins móðursýkislega og öllum hlutaðeigandi til minnkunar.
Fordæmdi forsetinn harðlega þá orðræðu ótta og skelfingar sem menn reyndu að nýta sjálfum sér til pólitísks framdráttar. Heimurinn fylgdist með, og því þyrftu menn að láta af þessari óhæfu hið snarasta. Góðar og skynsamlegar ákvarðanir yrðu aldrei teknar á grundvelli móðursýki og ýkjusagna, að því er RÚV hefur eftir amerískum fjölmiðlum í morgun.