Háðfuglinn og skemmtikrafturinn Jón Gnarr, sem gegndi embætti borgarstjóra allt síðasta kjörtímabil í Reykjavík, ætlar ekki að bjóða sig fram til forseta Íslands á næsta ári. Hann segir í vikulegum pistli sínum í Fréttablaðinu í dag að honum ói við þeirri tilhugsun að verða hluti af þeim "ömurlega og hallærislega kúltúr sem íslensk stjórnmálamenning sé" og hann "nenni ekki að standa aftur andspænis freka karlinum."
Á næsta ári verður liðinn fimmtungur úr öld sem Ólafur Ragnar Grímsson hefur setið á stóli forseta Íslands á Bessastöðum. Enginn forvera hans fjögurra sat svo lengi í embætti. Samkvæmt nýlegri en óformlegri skoðanakönnun á hringbraut.is þar sem spurt var hvort Ólafur Ragnar ætti að bjóða sig enn og aftur fram, en hann er á 72. aldursári, kvaðst fimmtungur aðspurðra vera því hlynntur.