Óánægður með harkaleg viðbrögð lögreglu: Handtekinn þegar hann kveikti á myndavélinni

Einstaklingur sem var handtekinn af lögreglu í gær lýsir yfir óánægju sinni með harðræði í vinnubrögðum í samtali við Fréttablaðið.

Kærasta mannsins birti myndband af handtökunni sem sjá má á vef Fréttablaðsins.

„Ég vildi óska þess að um einsdæmi væri að ræða, en staðan er langt frá því að vera sú. Þetta kvöld var kærastinn minn handtekinn af ástæðulausu.“ skrifar Kamilla Kristrúnardóttir Hancock, kærasta Pablo Cardona á Facebook-síðu sinni. „Hvernig er það glæpur að fara út í búð og ætla sér að kaupa eitthvað?“

Í samtali við Fréttablaðið lýsir Pablo því hvernig lögreglumaður hafi slegið símann hans úr hendi hans þegar hann tilkynnti að hann væri að taka upp samskipti þeirra. Stuttu seinna hafi hann verið snúinn niður en vinur hans sem var stuttu frá tók upp atvikið.

Þeir hafi haldið honum niðri í sjö mínútur og hefur Fréttablaðið undir höndum myndir sem sýni áverka á nokkrum stöðum víða um líkamann.

Aðalvarðstjóri á umræddu svæði lögreglunnar kannaðist ekki við atvikið þegar Fréttablaðið bar þetta undir hann.