Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sér spaugilegu hliðina á uppákomunni í þingsal á miðvikudagskvöldið þegar Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, sakaði þingmann um að vera þar undir áhrfum við fjárlagaumræðuna.
Kona hans hafi fengið fyrir hjartað þegar hún heyrði ræðu Lilju Rafneyjar: \"Það er ekki hægt að láta bjóða sér það að menn séu flissandi hérna úti í sal undir áhrifum,“ sagði Lilja Rafney sem ekki hefur viljað upplýsa um hvaða þingmann ræddi. Hún kvaðst þar vona að viðkomandi þingmaður myndi hugsa sinn gang.
Enn veit enginn við hvern Lilja Rafney átti, nema ef til vill hún sjálf.Og málið hefur sett þingið í uppnám. Þorsteinn Sæmundsson lýsti því yfir í gær að hann myndi taka málið upp hjá forsætisnefnd drægi Lilja Rafney ekki orð sín til baka eða upplýsti um hvern ræddi. Annars lægju allir undir grun.
Brynjar er öllu léttari í hjali en kollegi hans hjá Framsóknarflokknum, eins og vel kemur fram í færslu hans á fésbókinni í gærkvöld: \"Af því að ég hef enga ólyst á víni fékk frúin sting fyrir hjartað þegar hún sat fyrir framan skjáinn og horfði á Lilju Rafneyju flytja tímamótaræðu á þinginu í gærkveldi,“ skrifar Brynjar og kveðst saklaus með öllu af áhrifunum, en er samt hugsi: \"Ég bar af mér sakir þegar heim kom en lét þó fylgja að það væri ómannúðlegt að ætlast til að menn séu edrú alla daga á þessu þingi.“