Nýtur mun betri vaxtakjara en ísland

Gríska ríkið nýtur mun betri vaxtakjara en íslenska ríkið að því er fram kom í þættinum Heimsljós á sjónvarpsstöðinni Hringbraut sem frumsýndur var síðastliðið miðvikudagskvöld. Í þættinum, sem stjórnað er af Sólveigu Ólafsdóttur fréttamanni var rætt við Grikklandsvininn Egil Helgason og þingmennina Birgi Ármannsson og Valgerði Bjarnadóttur um vanda Grikkja, tilurð hans og líkur á lyktum.
Í þættinum kom fram að meginvanda Grikkja megi rekja til eyðslu ríkissjóðs langt umfram efni, en þess utan mjög spillts embættismannakerfis sem langvarandi samtrygging tveggja stærstu stjórnmálaflokka landsins hefur getið af sér. Þá geti innviðir landsins varla talist sterkir, nema ef vera kynni í ferðaþjónustu, en á móti komi að þar séu skattsvik landlæg.
Þess er nú freistað innan ESB að laga fjárhagsstöðu Grikkja í samvinnu við heimamenn. Vandinn er mikill. Skuldir Grikkja miðað við landsframleiðslu eru 175%, samanborið við 97% á Íslandi. Þó vekur athygli að vaxtagjöld Grikkja eru ekki nema 2,6% af landsframleiðslu borið saman við 4,5% á Íslandi. Vaxtagjöld Grikkja eru því 40% lægri þó höfuðstóll lánanna sé 80% hærri en á Íslandi.
Andri Geir Arinbjarnarson, verkfræðingur hefur bent á það í skrifum sínum að Grikkir njóti þess að vera í ESB og hafi þannig aðgang að ódýru fjármagni frá ríkjum þess og Seðlabanka Evrópu. "Íslenska ríkið er hins vegar fast í krónunni eða þarf að fara á rándýra erlenda markaði þar sem spekúlantar og hrægammar ráða kjörum," skrifar Andri Geir í nýlegum pistli sínum á vefmiðlinum Eyjunni.


Horfa á Heimsljós hér: