Suðurnesjamagasín Víkurfrétta hefur göngu sína á Hringbraut nú í vikunni og flyst þar með af sjónvarpsstöðinni ÍNN eftir nokkurra missera viðveru á þeirri stöð, en mannlífstengdar Suðurnesjafréttir hafa frá byrjun notið vinsælda í sjónvarpi.
Þættirnir verða eftirleiðis frumsýndir klukkan 21:30 á fimmtudagskvöldum á Hringbraut og verða hálftíma langir - og sem fyrr spanna þeir allt mannlífið suður með sjó sem er það atvinnusvæði landsins sem er í hvað mestri sókn nú um stundir. Í fyrsta Suðarnesjamagasíni Víkurfrétta verður meðal annars rætt við nýjasta menningarverðlaunahafa Reykjanesbæjar, sýnt frá opnun sýningarinnar ,,Þó líði ár og öld” í Hljómahöllinni, fjallað um læsiverðlaunaverkefni leikskólans Holts í Njarðvík og kíkt í Kjörbúð Samkaupa í Garði.
Páll Ketilsson, ritstjóri Víkurfrétta segir að honum og hans fólki á blaðinu hafi þótt tímabært að breyta til við eigendaskipti á sjónvarpsstöðinni ÍNN, en eftir farsælt samstarf við fráfarandi sjónvarpsstjóra þeirrar stöðvar, Ingva Hrafn Jónsson sé tími til kominn að leita á ný mið með sjónvarpsefni blaðsins. Samstarf við Hringbraut sé rökrétt framhald á dagskrárgerð Víkurfrétta, enda sé sú stöð í mikilli sókn og fagmennska þar ráðandi.
„Það er mikill fengur fyrir okkur að fá Pál Ketilsson og hans fólk á Víkurfréttum til liðs við okkur á Hringbraut,“ segir Sigmundur Ernir Rúnarsson, dagskrárstjóri Hringbrautar og rifjar upp að samstarf hans og Páls hafi byrjað á Stöð 2 fyrir góðum aldarfjórðungi „og ég þekki fyrir vikið fagmennsku hans og lipurð í samstarfi.“ Sigmundur Ernir minnir á að nú á haustmánuðum sé dagskrá Hringbrautar að vaxa og dafna, jafnt að mannafla sem þáttum – og innkoma sjónvarpsþátta Víkufrétta eigi eftir að styrkja og víkka dagskrárgerð Hringbrautar til muna.
„Þetta verður okkar Reykjanesbraut og vonandi vísar hún okkur leiðina út á land í meira mæli en sést hefur í dagskránni fram til þessa. Takmark okkar er auðvitað að verða sterk stöð á landsvísu,“ segir Sigmundur Ernir.
Páll Ketilsson hefur rekið fjölmiðlafyrirtækið Víkurfréttir ehf. á fjórða áratug. VF er eitt stærsta og elsta fjölmiðlafyrirtækið á landsbyggðinni, en það heldur úti vikulegu fréttablaði, fréttavef, golfvef og sjónvarpsþáttagerð.