Fyrsti þáttur Sigríðar Arnardóttur, Fólk með Sirrý er frumsýndur á Hringbraut klukkan 20.00 í kvöld og fjallar hann um starfsmöguleika fólks á miðjum aldri. Aðalgestir Sirrýjar að þessu sinni eru þau Guðjón Þórðarson fyrrverandi knattspyrnuþjálfari og Sigurjóna Sverrisdóttir leikkona, en bæði hafa þau lengi búið erlendis, Guðjón við þjálfun í Englandi og Sigurjóna með eiginmanni sínum Kristjáni Jóhannssyni óperusöngvara á Ítalíu. Þau þekkja bæði þann veruleika að fá ekki starf á miðjum aldri og munu ræða hann hispurslaust í þættinum. Guðjón er núna endurmennun Háskóla Íslands til að auka atvinnumöguleika sína og Sigurjóna er kominn í nýtt starf eftir nám við sama skóla.
Í þættinum verður einnig rætt við Sigrúnu Waage sem dreig sig í nám um fimmtugt, Ásdísi Emilsdóttur Pedersen sem söðlaði um og fór í guðfræði á miðjum aldri, svo og Sverri Briem sem starfar við stjórnendaráðningar hjá Hagvangi.
Þættir Sirrýjar eru 50 mínútna langir og verða vikulega á dagskrá Hringbrautar á þriðjudagskvöldum klukkan 20.00 og verður einnig hægt að nálgast á vefnum hringbraut.is, jafnt í heild sinni og í styttri klippum.