Nýtt tilboð frá samninganefnd ríkisins hefur aukið bjartsýni á meðal félagsmanna Bandalags háskólamanna, en verkfall þeirra hefur nú staðið yfir á annan mánuð og hefur lítið sem ekkert þokast í samkomulagsátt allan þann tíma, fyrr en nú.
Tilboðið var lagt fram á tveggja tíma löngum fundi deilenda í Karphúsinu í gær, en það segir nokkra sögu um þann hnút sem deila þeirra var komin í að enginn fundur hafði verið haldinn til lausnar hennar í heila viku þar á undan. Páll Halldórsson formaður samninganefndar BHM segir nýja tilboðið vera í áttina að því sem félagar í BHM hafa verið að ræða sín í milli, en því verði líklega svarað í dag. Það geti hleypt af stað hraðri atburðarás.
Verkfall BHM nær til fjölda starfsgreina og hefur haft mikil áhrif í heilbrigðisgeiranum og matvælavinnslu, en meðal þeirra sem lagt hafa niður vinnu eru geislafræðingar, lífeindafræðingar, náttúrufræðingar á Landspítalanum og Matvælastofnun ásamt öðrum háskólamönnum þar, ljósmæður að hluta á Landspítala og Akureyri, lögmenn hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu og dýralæknar.