Skrefinu lengra er glæný þáttaröð sem hóf göngu sína á Hringbraut á sunnudagskvöld. Hér eru á ferðinni einkar skemmtilegir og fræðandi þættir þar sem Snædís Snorradóttir dagskrárgerðarkona mun kynna fyrir áhorfendum námsleiðir og námskeið sem hægt er að sækja.
Í fyrsta þættinum af Skrefinu lengra fer Snædís í Ökuskólann í Mjódd og fræðist um þá víðtæku starfsemi sem þar fer fram, allt frá almennum ökuréttindum yfir í endurmenntun atvinnubílstjóra og allt þar á milli, svo sem bifhjólanám, fjölbreyttar tegundir meiraprófs og fleira.
Ökuskólinn fluttist í húsnæði sitt í Mjódd fyrir 30 árum og hefur útskrifað tugþúsundir ökumanna. Þessi rótgróni skóli hefur vaxið og þróast með samfélaginu og starfar á einkar faglegan og skilvirkan hátt. Snædís talar við þá Guðbrand Bogason, Sigurð Steinsson, Þórð Bogason og Sigurð Sigurbjörnsson.
Að ökuskólanum loknum fer Snædís í Tennishöllina í Kópavogi þar sem miklar framkvæmdir eru í gangi um þessar mundir. Að framkvæmdum loknum mun aðstaða Íslendinga til tennisiðkunar innanhúss aukast um rúm 100 prósent. Auk þess verða nýir vellir reistir fyrir utan tennishöllina sem eru sérhannaðir fyrir nýtt afbrigði af tennis sem kallast Padel. Snædís reynir svo við tennisspaðann en verður að lúta í lægri hlut fyrir Ómari Smára, níu ára gömlum tennisiðkanda.
Skrefinu lengra eru sýndir klukkan 21:00 á sunnudagskvöldum.
Fyrsta þáttinn í heild sinni er að finna hér: