Nýtt sinfónískt verk frumflutt

Á morgun, sunnudaginn 14. febrúar, verður boðið upp á menningarlegan stórviðburð í tónlist. Þá verður flutt VÖLUSPÁ, nýtt sinfónískt verk eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson, sem oftast er kenndur við hljómsveitina Todmobile. Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Valgerður Guðnadóttir, Hymnodia og Kammerkór Norðurlands frumflytja verk hans.

Þorvaldur Bjarni hefur samið tónlist við fjölda söngleikja, má þar nefna Gosa, Benedikt Búálf og Ávaxtakörfuna. Hann er einnig gítarleikari og lagahöfundur Todmobile og hefur samið og tekið upp tónlist fyrir allar tegundir miðla samtímans.

Valgerður á sér frækinn feril í söngleikjum og óperum. Eftirminnileg er frammistaða hennar í Vesalingunum í uppsetningu Þjóðleikhússins árið 2011 þar sem hún söng hlutverk hinnar ólánssömu Fantine.

Ljóð Völuspár eru í dag ein okkar helsta heimild um norræna goðafræði. Í ljóðunum er sagt frá sögu heimsins, allt frá sköpun til ragnaraka og er það í gegnum samtal Völvu og Óðins sem við fáum að upplifa sögu Goðanna. Nýtt videólistaverk eftir Sól Hrafnsdóttur verður flutt samhliða verkinu og verður því varpað á bíótjald á bakvið hljómsveitina.

Einnig verða flutt stórvikin Promotheus eftir Frans Lizt og Pan og Ecco eftir Sibelius á sömu tónleikum.

Hljómsveitarstjóri verður Guðmundur Óli Gunnarsson.