Sprenging í istanbúl: minnst 10 látnir

Rétt fyrir klukkan 09:00 í morgun var tilkynnt um öfluga sprengingu í einu elsta hverfi Istanbúl, stærstu borgar Tyrklands, en hún varð skammt frá bláa hofinu, einu kunnasta kennileiti borgarinnar. Minnst tíu eru sagðir látnir og fimmtán sárir.

Talið er nær víst að hér hafi verið um hryðjuverk að ræða, enda þótt enginn hafi enn lýst ábyrgð á sprengingunni, en hún varð við sporvagnastöð í Sultanahmet-hverfinu klukkan 08:20 að íslenskum tíma, eða 10:20 að staðartíma. AP hefur eftir tyrkneskum miðlum að fjölmargir séu sárir. Enn hefur ekki fengist staðfest hvað sprengingin kostaði mörg mannslíf.

Bláa moskan og Hagia Sofia eða Ægissif eru á  meðal þeirra ferðamannastaða sem finna má í Sultanahmet-hverfinu.