Nýtt módel á vinnumarkaði samþykkt

Tímamót urðu á vinnumarkaði í gær þegar stærstur hluti aðila sem kemur að kjarasamningaborði, eða yfir 70% hans varð sáttur við nýja leið við samningsgerð, áþekkri þeirri sem þekkst hefur á hinum Norðurlöndunum.

Mark­mið sam­komu­lags­ins, sem heildarsamtök launafólks og atvinnurekenda á almennum og opinberum vinnumarkaði skrifuðu undir í dag, er að tryggja var­an­lega aukn­ingu kaup­mátt­ar á Íslandi á grund­velli lágr­ar verðbólgu, stöðugs geng­is krón­unn­ar og lægri vaxta. Utan hópsins eru meðal annars ríkisstarfsmenn í BHM sem útiloka þó ekki aðkomu að samkomulaginu.

Sam­komu­lagið nær til árs­ins 2018, en í til­kynn­ingu kem­ur fram að þar eigi að stöðva svo­kallað \"höfr­unga­hlaup á vinnu­markaði“ með sam­eig­in­legri launa­stefnu.

Nýtt samn­ingalík­an ger­ir ráð fyr­ir að svig­rúm launa­breyt­inga verð skil­greint út frá sam­keppn­is­stöðu gagn­vart helstu viðskipta­lönd­um og munu samn­ing­ar við út­flutn­ings­fyr­ir­tæki móta svig­rúm til launa­breyt­ing­anna.

Þá verður jöfn­un í líf­eyr­is­rétt­ind­um á al­menna og op­in­bera vinnu­markaðinum, en á móti verður op­in­ber­um starfs­mönn­um tryggð hlut­deild í launa­skriði á al­menn­um vinnu­markaði. Þá verða kjara­samn­ing­ar miðaðir við að auka kaup­mátt á grund­velli stöðugs geng­is.