Nýtt meltingargel kynnt til sögunnar

Nýtt meltingargel sem fóðrar magann og minnkar líkur á vindverkjum og öðrum kvillum í meltingarkerfinu verður til umfjöllunar í þættinum Allt er nú til sem er á dagskrá Hringbrautar í kvöld kl 20:45.

Heildsalan Ýmus flytur þessa vöru inn til landsins, en þar á bæ segja menn að virkni gelsins sé afar athyglisverð og komi sér til dæmis vel fyrir fólk sem er á faraldsfæti víða um heim en flestir þekkja magavandræði sem geta komið upp í fjarlægum heimshlutum.

Í þætti kvöldsins verður einnig komið við í heilbrigðisdeildinni í Fastusar í Síðumúla og þar munum við fræðast en þar er á boðstólnum margvíslegur varningur og þjónustulausnir fyrir allan heilbrigðisgeirann og er athyglisvert að sjá alla þá framþróun og nýsköpun sem er að gerast í þessum mikilvæga geira samfélagsins.

Þættirnir Allt er nú til eru unnir af sölu- og markaðdeild Hringbrautar, en þar gefst fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum að kynna vöru sína og þjónustu.

 

Allt er nú til er eins og fyrr segir á dagskrá Hringbrautar í kvöld kl 20:45, en hann er í umsjá Díönu Írisar Guðmundsdóttur, [email protected].