Það er ekkert lát á innlendri dagskrárgerð á sjónvarpsstöðinni Hringbraut, en ný átta þátta sería um mannrækt hefst á stöðinni í kvöld þar sem einn helsti frumherji Íslendinga á sviði lífsstílsráðgjafar, Guðni Gunnarsson sest niður með sjónvarpsmanninum Sigmundi Erni og eys úr brunni visku sinnar.
Guðni ruddi brautina á sínum tíma í heilsurækt á Íslandi og hefur á síðustu áratugum notið virðingar jafnt heima og erlendis fyrir skrif sín, námskeið og fyrirlestra um andlega og líkamlega næringu. Bækur hans Máttur viljans og Máttur athyglinnar hafa aukið hróður hans enn frekar á þessu sviði mannræktar.
Í þáttunum taka Guðni og Sigmundur Ernir skrefin sjö til farsældar sem snúast öðru fremur um að velja sig, vilja sig og njóta sín, fremur en að hafna sér og refsa sakir brotinnar sjálfsmyndar og lítils trausts í eigin garð og annarra. Þættirnir eru ferðalag inn á við, allt að kjarna manneskjunnar.
\"Það er aðallega Guðni sem hefur orðið, en ég er fulltrúi áhorfandans sem þarf á stundum útskýringar,\" segir Sigmundur Ernir sem kveðst á stundum hafa þurft að hnippa í Guðna á háfleygustu köflum fyrirlestranna, \"en þetta er heillandi vegferð, því get ég svo sannarlega lofað.\"
Mannrækt með Guðna Gunnars byrjar klukkan 20:00 í kvöld, en þættirnir verða einnig aðgengilegir inni á vefnum hringbraut.is undir flipanum sjónvarp.