Nýtt líffæri fundið í mannslíkamanum

Vísindamenn telja sig, ótrúlegt nokk, hafa fundið nýtt líffæri í mannslíkamanum og ef rétt reynist, eitt það stærsta. 

Í grein um rannsóknirnar í vísindatímaritinu Scientific Reports lýsa þeir eiginleikum og hlutverki millifrumvökvans og og hólfanna sem hann er í (interstitium) og sem finnst í öllum vefjum líkamans. 

„Upphaflega vorum við bara að hugsa að þetta væri nú athyglisverður vefur, en þegar maður skoðar hvernig við skilgreinum líffæri yfirleitt, þá snýst það í raun um eina eða tvær hugmyndir: að það sé með einsleita byggingu eða það sé vefur með einsleita uppbyggingu eða vefur með einsleita virkni,“ segir annar höfunda greinarinnar, Dr. Neil Theise, prófessor við New York University. Millifrumu vökvinn fullnægir báðum skilyrðum, segir hann. 

Hann segir líffærið, ef líffæri má kalla, stærra en húðin. „Mitt mat er að þetta sé um 20% af rúmmáli líkamans, sem jafngildir þá um 10 lítrum í ungum fullorðnum einstaklingi.

Theise segir að rannsóknir á millifrumuvökvahólfunum geta brugðið ljósi til dæmis á bólgur og útbreiðslu krabbameins í líkamanum.