Félagsráðgjafi á Landspítalanum lak upplýsingum um víetnömsku hjónin Thi Thuy Nguyen og Hao Van Do til Útlendingastofnunar.
Þetta staðhæfir Fréttablaðið í dag og hefur heimildir fyrir því að upplýsingarnar komi fram í dagbókarfærslu stofnunarinnar.
Segja má að leki félagsráðgjafans hafi verið undanfari leka Útlendingastofnunar á trúnaðarupplýsingum en Útlendingastofnun óskaði eftir lögreglurannsókn á hjónabandinu þann 4. desember á síðasta ári, tæpu ári eftir að Thuy og Hao gengu í hjúskap og þremur mánuðum eftir að þeim fæddist dóttirin Sandra eins og fram kemur í Fréttablaðinu. Stofnunin grunaði hjónin um málamyndahjúskap en þá hafði Útlendingastofnun ekki boðað hjónin í viðtal um hagi þeirra.
Ríkisútvarpið greindi frá því um helgina að Thuy og Hao hafa tekið ákvörðun um að kæra leka Landspítalans til Persónuverndar. Á spítalanum er málið til skoðunar og litið alvarlegum augum að sögn Guðnýjar Helgu Herbertsdóttur upplýsingafulltrúa.
Ósk Úlendingastofnunar til lögreglu byggðist meðal annars á upplýsingum frá Landspítalanum um að Thuy væri ung og barnaleg en maður hennar, Hao, óframfærinn en það sem virðist hafa vakið tortryggni er að Thuy og Hao hittu félagsráðgjafann eftir fæðingu dóttur þeirra, meðal annars til að greiða úr því hver skyldi bera kostnað af fæðingunni. „Í máli þeirra hjóna kom fram að Thuy væri með dvalarleyfisumsókn í ferli, auk þess sem Hao hefur varanlegt dvalarleyfi hér á landi. Því ættu hjónin ekki að þurfa að borga fyrir fæðingu barnsins. „Svo virðist að í kjölfarið hafi þetta símtal til Útlendingastofnunar átt sér stað þar sem upplýsingunum var lekið,“ segir í Fréttablaðinu en hjónin fengu ríflega 265 þúsund króna reikning eftir fæðingu barns síns, tæpu ári eftir að það fæddist.
Nú viku eftir að Fréttablaðið startaði umfjöllun um málið er landvistarleyfið í höfn og er þakkað umfjöllun fjölmiðla segir í frétt blaðsins í dag.